Sumt fólk er alveg
rosalega leiðinlegt! Sumt fólk er ennþá leiðinlegra! en sumt
fólk er svo leiðinlegt að það getur ómögulega orðið
leiðinlegra!! og þá er það orðið mjög slæmt!! ég þekki eina
svoleiðis!!
Um helgina fór ég í
brúðkaup og var það alveg sérdeilis prýðilegt. Svo skellti ég mér á
ball og viti menn ég frétti í dag að ég hefði bara ætlað að berja
mann og annan! Jédúddamía! Ég man nú ekki eftir að hafa ætlað að
lemja neinn en það virðist vera að fólk geti ekki haft gaman af
lífinu nema að koma með einhverjar svona leiðinlegar
sögur!
Það er nú samt ýmislegt
skemmtilegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Enda ekkert
smá langt síðan það var.:/ ég fór á bryggjuhátíð og hitti þar alveg
bara fullt af fólki sem ég var með í skóla. Það fannst mér sko ekki
leiðinlegt.J
svo var ball með Ingó Idol! Mjög gaman. Alveg þrusu góð
hljómsveitJ
Um daginn skellti ég mér
í Djúpavík, þar var Sigurós að spila! Mér hefur nú aldrei
fundist Sigurós vera skemmtileg hljómsveit en mér fannst þetta
alveg geiðveik
bara alveg ótrúlega skemmtilegt.J
Heyrðu ég fór á sjóinn um daginn og ég
held barasta að við höfum veitt ekkert meira né minna en
15 fiska eða
e-ð!!
Um
verslunarmannahelgina fór ég á fjölskyldumót í Árneshreppinn. Það
var fínt. Fór á ball á föstudeginu og á diskótek á laugardeginum.
Þetta var alveg ágætis skemmtunJ
Nú styttist alveg
ótrúlega í að maður fari að fara í skólann. Ég á að sækja
stundatöfluna á miðvikudaginn og svo byrjar skólinn á fullu á
mánudaginn. Þannig að það er bara vinna út þessa viku og svo er
maður farinn í borginaJ
Jæja núna ætla ég
að hætta..
Bless
blessJ